Um Orðakast

Höfundur Orðakasts heitir Hafrún Hafþórsdóttir og er starfandi deildarstjóri í heilsuleikskólanum Heiðarseli í Reykjanesbæ. Hún er uppeldis- og menntunarfræðingur að mennt og lýkur kennsluréttindum í júní 2026. Hafrún hefur starfað í leikskóla síðan í ársbyrjun 2009 og hefur því langa og góða reynslu af starfi í leikskóla.

Ásamt því að eiga góðar fyrirmyndir innan starfsvettvangsins hefur Hafrún brennandi áhuga á þroska barna, sér í lagi málþroska en þaðan kom hugmyndin fyrir Orðakast. Í leikskólanum þarf kennari gjarnan að sinna mörgum ólíkum þörfum á skömmum tíma og þá getur hentað einstaklega vel að hafa spil eins og Orðakast við höndina, allt tilbúið í einum kassa!

Orðakast er kennsluefni ætlað börnum en ávallt undir handleiðslu fullorðins. Börn í leikskóla og yngsta stigi grunnskóla eru á mikilvægu mótunarskeiði í málþroska og því er mikilvægt að þau búi við virkt málaumhverfi en Orðakast getur þá verið góður stuðningur.


Í Orðakasti er hægt að auka við orðaforða barna, æfa hlustun eftir hljóði í orðum, ríma, klappa atkvæði, æfa orðhlutaeyðingu, frásögn og margt fleira. Efnið er ætlað börnum frá 2-8 ára en getur einnig hentað vel í talþjálfun og í vinnu með tví- og fjöltyngdum börnum.


Gríptu í Orðakast – Gleðilegar orðaveiðar!