Skilmálar

Vörur og sendingarkostnaður

Verð í vefverslun Orðakasts eru með inniföldum 24% vsk. Sendingarkostanður bætist ofaná verð vörunnar áður en greiðsla fer fram. 

Orðakast býður uppá að fá vöruna senda með Dropp og tekur sendingartíminn að jafnaði 2-4 virka daga. Sendingartími er mismunandi eftir því hvar kaupandi býr.

Orðakast býður einnig uppá heimkeyrslu í Reykjanesbæ, kaupanda að kostnaðarlausu.

Alltaf er hægt að hafa samband og athuga með möguleika á öðrum afhendingarmáta.

Afhending

Pöntun er staðfest þegar greiðsla hefur borist. Allar pantanir eru afgreiddar samdægurs eða næsta virka dag eftir að pöntun berst.

Sé vara ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Á þeim pöntunum sem sendar eru með Dropp gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropp. ordakast.is ber því samkvæmt ekki ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru eftir að Dropp fær þær afhentar. 

Skil

Viðskiptavinur sem verslar á ordakast.is hefur  14 daga skilarétt frá móttöku vöru.  Framvísa þarf kvittun sem sýnir með fullnægjandi hætti að varan var keypt. Varan þarf að vera í upprunalegum óskemmdum umbúðum þegar henni er skilað.

Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. 

Skilaréttur gildir ekki á vöru sem keypt er á útsölu.

Galli í vöru

Ef vara er gölluð á einhvern hátt hvetjum við kaupandann til að hafa samband. Kaupanda er boðin ný vara í staðinn. 

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Hérðasdóm Reykjavíkur.

Öryggisskilmálar

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.